Eftir því sem hefur borist til minna gríðarstóru eyrna verður kosið til stjórnar FLÍS á föstudaginn næsta.
Til að þið getið sett ykkur inn í málin eru hér útskýringar á því um hvað þetta snýst.
Stjórn FLÍS samanstendur af
formanni - sem situr deildarráðsfundi og er tenging nemenda við bæði deildarforseta og rektor LHÍ. Hann boðar fundi og er áberandi og sjálfumglaður en reynir samt að vera skemmtilegur þótt hann viti að hann sé betri en allir hinir.
framkvæmdastjóra - þarf ekki að gera neitt nema hringja í Óla húsvörð þegar það eru partí og vera skemmtilegur við Óla húsvörð. Tvisvar á ári er honum skylt að bjóða Óla húsverði út að borða og gista hjá honum. Ef formaður nennir ekki að gera eitthvað biður hann framkvæmdastjórann um að sjá um það.
gjaldkera - heldur utan um fjármál nemendafélagsins. Hanngreiðir reikninga FLÍS og sér um innkaup fyrir nemendafélagið, s.s að fara í ríkið. Þetta er ábyrgðarfull staða því enginn vill halda bjórlaust ball. Rósa var besti gjaldkeri sem hefur verið við völd svo hér er um að ræða stóra skó til fyllingar.
Ritari - sér um halda utan um fundargerðir FLÍS og passa upp á BÓKINA. BÓKINNI kynnist þið síðar.
Einnig eru nokkrar nefndir sem heyra undir FLÍS. Þar máhelst nefna
skemmtinefnd - halda partý og böll
norðannefnd - sér um að skipuleggja árlega ferð til Akureyrar þar sem LA er heimsótt og redda öllu sem henni tengist. Norðannefnd er í fríi allt árið, nema viku fyrir norðanferð.
Vefritari sér um www.leiklistarnemar.is. Ráðandi vefnefnd hefur úrslitavald um hver eftirmaður hennar er, enda ekki á hvers manns valdi að halda úti svo glæsilegri vefsíðu. Hún getur ákveðið að sitja áfram.
Trúnaðarmaður er sá sem nemendur geta leitað til þegar viðkvæm mál koma upp í námi.
Dósanefnd sér um að halda utan um dósir og flöskur þær sem falla til í félagslífinu og fara með þær í endurvinnslu. Skemmtilegasta fólkið er alltaf í dósanefnd.
Núverandi stjórn FLÍS er:
Trúnaðarkonur nemenda: Tinna Sverrisdóttir og Olga Sonja Thorarensen (leikaranámi)
Vefritarar: Berglind Pétursdóttir og Ásrún Magnúsdóttir (dansnámi)
Farið að hugsa um framboðsræður.
kv.
Rektor













