Félag leiklistarnema á Íslandi

http://www.leiklistarnemar.is/

Breyta mér stillingum

Efni

dú rú rú

09.08.2010 19:56 - 101 lestrar

 

 

Sýningin hennar Önnu Maríu, True Love verður sýnd í Óperunni fimmtudaginn 12. ágúst kl. 12:30  bara þessi eina sýning og mjög takmarkað sætaframboð!!

Sýningin er hluti af artFart og miðsala og pantanir eru í gegnum midapantanir@artfart.is og í síma 6639444

 

 

 
Sara Margrét sendi okkur handskrifað bréf og bað okkur um að upplýsa hverjir væru að taka þátt í artFart og hér er það sem ég veit um:
 
9. og 10.ágúst er Kara með dansgjörning í Útgerðinni
 
12.ágúst Anna María í Íslensku Óperunni
 
12., 13. og 15.ágúst er Halldór Halldórsson (aka Halldór Gylfason) í MarioBros leikriti á Norðurpólnum.  
 
14.ágúst er síðasta sýning Hlyns Páls á BSÍ (þar eru Ásrún, Ólöf, R.Harpa, Ingaló, Ævar, María o.fl) 
 
19.,20.og 22.ágúst sýna Berglind&Ásrún&Rósa (HNOÐ) SNOÐ í Smiðjunni. (mæli með því)
 
Ég held að þetta sé allt en ég er mjög líklega að gleyma einhverjum. Sorrí með það niggas. Tjékkið á www.artfart.is
 
Sara vildi líka koma því á framfæri að næstkomandi konungur Dana á von á tvíburum!!!! Við óskum honum til hamingju með það og að því tilefni ætla ég að skjóta upp átta fallbyssukúlum í kvöld.
 
EITT AÐ LOKUM
 
HNOÐ MÁLAÐI (nú er smiðjan appelsínugul) OG TÓK TIL Í SMIÐJUNNI Í DAG. HVERSU MÖRG DUGNAÐARSTIG EIGUM VIÐ AÐ GEFA ÞEIM?
 
HVAÐ MEÐ MILLJÓN?
 
samþykkt 

 
 

hafa samband ps.

04.08.2010 00:25 - 125 lestrar

Yo leiklistarnemar nenniði að bomba á mig einhverju feitu slúðri. Þið getið smellt á HAFA SAMBAND hérna til vinstri (respect á Önnu Maríu sem er sú eina sem notar þennan fítus) og sent mér annað hvort djúsí sögur eða spurt mig að einhverju persónulegu, hvað svo sem það skyldi vera.
 
Það sem er helst að frétta er að Vefnefnd, gjaldkeri og framkvæmdarstjóri fóru á Karate Kid í bíó og gengu út í fýlu. GOD DAMN HVAÐ ÞETTA ER LEIÐINLEG RÆMA. Þessi litli Smith ætti kanski aðeins að hafa drífandi hindrunina (karate) í huga, eða hvað?
 
Við sáum Hjört úti að hlaupa í dag. Hvað er það?
 
Hjörtur?
 
Orðinn feitur?
 
Ekki gleyma...HAFA SAMBAND. 

tilkynning til áhugasamra

31.07.2010 01:07 - 160 lestrar

 

Hæ nýnemar

 

ég hvet  ykkur ti að smella á linkinn NEMENDUR hér til vinstri og læra hvað allir heita og hver er bestur og sætastur (Berglind Péturs. o.fl.) Ég settti einnig inn hvar 3.árs nemendur verða í skiptinámi, svona ef þið þurfið að ná í okkur.

 

Enn fremur hvet ég alla til að smella á artFart hjólið hér til vinstri og lesa sér til um dagskrá hátíðarinnar í ár, margir af okkar fyrrverandi og núverandi stórkostlegu nemendum sýna þar hvað í þeim og skipuleggja hátíðina og hvaðeina.

 

Einnig vil ég hvetja ykkur til að horfa aftur á Titanic. Það er góð mynd.

 

Nemendaleikhúsið setur upp Titanic vorið 2012 - Ókeypis tillaga frá mér.

 

  


elska msn hljóðið. líður eins og ég sé 15 aftur.

30.07.2010 20:23 - 178 lestrar

Við vorum að muna að MSN ER SNILLD.
 
ADDIÐ OKKUR
 
runa_stud@hotmail og naglalakk@hotmail
 
 
í haust verður svo haldin keppni um vandræðalegasta hotmail usernafnið! 
 
 
 
gagnlegt! 

plz ekki vera svona miklir plebbozar

28.07.2010 00:48 - 110 lestrar

 

Þið sem eruð á leiðinni til eyja um verslunarmannahelgina - ykkur verður afneitað.

 

Siggi - taktu þetta til þín 


ýmslt

27.07.2010 19:20 - 226 lestrar

Nú er fokið í flest skjól.

 

Ég frétti það á bensínstöð í Árbænum að ég og Ásrún værum kærustupar. Ég vil leiðrétta þann misskilning. Við erum bara vinir.

 

Ég heyrði í sundi að Stebbi Jóns væri byrjaður að safna hári á bakið til að geta sofið á maganum án sængur.

 

Karen masaði fjálglega á kaffihúsi um að Dansbekkurinn muni setja upp Hellisbúann á 3.ári.

 

Bjössi sagði Pétri sem sagði Kolla sem sagði Kötlu sem sagði mér að Snorri væri feitur..

 

Í sumar eru allir að vinna við eitthvað skemmtilegt. 

 

  • Ásrún & Berglind & Rósa & Saga & Ugla eru í skapandi sumarstarfi hjá Hinuhúsinu og eru allar mjög illa liðnar þar.
  • Pétur er að vinna sem aðstoðarmaður tannlæknis á Egilstöðum. 
  • Bjössi er á geðdeild.
  • Ævar er í húsdýragarðinum. Hann byrjaði sem lamb en hefur verið hækkaður upp í stöðu kálfs.
  • Kara steikir beikon til styrktar langveikum hótelgestum.
  • María og Þyri vinna sem þrælar.
  • Halldór reynir fyrir sér sem sölumaður í sófaverslun.
  • Ingibjörg og Hilmir eru á fullu í tökum á Brúðkaupsþættinum Jámm.
  • Sara Margrét er full time skemmtikraftur á Strikinu.
  • Olga selur sjöl og dauða minka í Geysi.
  • Sigga vinnur 26 tíma vaktir 8 daga í viku á gistiheimili.
  • ég veit ekkert hvað hinir eru að gera. ok bæ

við mælum með..

27.07.2010 19:02 - 177 lestrar

 

 

WWW.ARTFART.IS


við erum við hestaheilsu

15.07.2010 01:02 - 174 lestrar

 

  

 

Eins og sést lítum við einstaklega vel út og okkur heilsast konunglega. Skelltum okkur á þungarokktónleika í kvöld og á morgun erum við að fara upp á Húð og Kyn í okkar mánaðarlega tjékk. Mælum með því. Það er eitthvað tippakvef að ganga.

Við erum alltaf uppi í skóla að æfa frábæra list ef þið hafið áhuga á því að spjalla eða eitthvað.

 

Aðrar fréttir af nemendum eru eftirfarandi:
Aude fór út að borða á Holtið um daginn með Sigga. Það var frábært segir Aude.

Rósa er að halda útflutningspartí bráðum og þeir sem hafa fengið boð í það eru velkomnir. Hún er að fara að hætta í skólanum. Svikari.

Himmi og Lára keyptu sér jeppa :(

Því verður þannig háttað í haust að ef einhver hæfileikaríkur vefari býður sig fram fær hann tækifæri til að spreyta sig á þessari draumasíðu en við verðum engu að síður áfram við lýði til að bera ykkur fregnir af skiptinámi og öðru þroskuðu efni. 

Ásdís stendur í húsaskiptum.

Margir standa í makaskiptum. Ég hef ekki tölu á þessu lengur. 

 

 

Það styttist í ArtFart.

 

ÞAÐ ER GAMAN. 


á sumrin er mesta dramað

02.07.2010 00:42 - 177 lestrar

ath ath ath ath ath ath ath 

 

 

ugla var að kaupa sér skó

 

saga er brjáluð

 

 

stay tuned 


HM í rassbolta

15.06.2010 20:09 - 232 lestrar

 

Sælir apaheilar

 

Ég vildi bara minna á það hversu unglegar og fallegar Berglind, Rósa og Ásrún eru og þær eru fullkomnar.

 

Saga, Rósa, Ragga Harpa og Sigga fá kudos fyrir að undirbúa dansleikinn.

Begga, Rúna og Rossi fá props (hehe) fyrir að ÞRÍFA ALLT EFTIR YKKUR HELVÍTIS KLÍSTRARARNIR YKKAR. AF HVERJU ÞURFIÐI AÐ SETJA SVONA MIKIÐ KLÍSTUR Á GÓLFIÐ?

 

Nemendaleikhúsið má taka það til sín að það er ekki sjálfsagt að yngri nemendur taki á sig svona mikinn þunga vegna útskriftar þeirra en óskum þeim samt til hamingju.

Munið að þakka okkur í ræðunni þegar þið vinnið Grímuna/Óskarinn/Emmy's. Persónulega finnst mér líklegast að þið fáið Emmy. Öll.

 

Jæja. Að öðru

 

á 17.júní verður danshópurinn/vinahópurinn HNOÐ með danssýningu fyrir framan Humarhúsið kl 14:30. Við erum búnar að redda karlakór og þetta verður eitthvað frekar feitt shit þannig endilega komið að horfa á okkur og klappið og syngið með o.s.frv.

 

Annars hvet ég ykkur bara til að fylgjast vel með HM í blaki og gleðilegt sumar enn og aftur.

 

ykkar

 

Rósa

 

djók

 

ásrún & Berglind

 

djók

 

ykkar Olga 


« fyrri síða | næsta síða »

Upp aftur