Félag leiklistarnema á Íslandi

http://www.leiklistarnemar.is/

Breyta mér stillingum

Efni

Lokapartý

ég man því miður ekki eftir þessu balli. allar upplýsingar vel þegnar.

Líkamaverkefni F&F

yeah baby. étum og drepum.

Davide Sportelli kennir dönsurum

Davide er ítalskur en er einn fárra sem hafa meikað að starfa sjálfstætt í Berlín og dansaði m.a. með Söshu Waltz. Sköllóttur og góður.

Nóvember 2009

Varúð - Svarthvítt

Haust 2009

Þrælar listarinnar in action

Kosningakvöld 2009

Ingibjörg í F&F tók myndir af frambjóðendum, almennum kjósendum og líka boðflennum.

Gamalt og gott frá 2006-2007

Þetta fannst á tölvunni hjá vefstjóranum. Ljósmyndarar eru Dunda, Obba, Bjartur og fleiri. Njótið!

Dansleikhús á Egilsstöðum

Í janúar 2009 lagði 3. ár leikara land undir fót ásamt Ólöfu Ingólfs kennara. Þau voru að læra að dansa og hvar er betra að læra að dansa en í höfuðborg dansins: Egilsstöðum?

Ólöf tók myndirnar. 


Alls konar myndir

Ingibjörg á 1. ári í F&F er dugleg að taka myndir. Hér eru fleiri myndir frá henni úr daglegu lífi í skólanum.

Jólaballið 2008

Nemendur og kennarar úr tónlistar- og leiklistardeild klæddu sig í betri fötin og fögnuðu jólafríi 12. desember 2008. Og þó að það ætti eftir að skila nokkrum greinagerðum og ritgerðum stoppaði það engan!

Jólatónleikar 2008

Kór leiklistardeildarinnar flutti nokkur lög, þ.á.m. þjóðlegt spunaverk í lok nóvember 2008. Stjórnandi var Þórhildur Örvarsdóttir. Á eftir kórnum steig svo 3. ár leikara á stokk og söng úr sér lifur og lungu.

Leiktúlkun hjá Steinunni Knúts

1. ár leikara brá sér í betri fötin og opnaði dyrnar í tíma hjá Steinunni Knúts.
Er' ekki allir í satzi?!


Tiina raddkennari

Tiina kom frá Finnlandi og kenndi 3. ári leikara að öskra. Og anda.

Sviðsetning I

Nemendur úr 1. ári Fræði og framkvæmdar sýndu verkefni sín í "Sviðsetningu I" undir stjórn Unu Þorleifsdóttur.

Frá skynjun til sköpunar

1. ár leikara gerði upp áfangann "Frá skynjun til sköpunar" með litlum verkefnum undir stjórn Ólafar Ingólfsdóttur.

Tangó hjá 3. ári

3. ár leikara dansar tangó eins og enginn sé morgundagurinn. Haustið 2008.

Devised-leikhús 3. árs

3. ár leikara, undir stjórn Unu Þorleifsdóttur, skoðuðu Skandinavíu með augum devised-leikhússins. Haustið 2008.

Myndir frá Ingibjörgu

Ingibjörg á 1. ári í F&F tók myndavélina með sér í skólann og tók myndir af því sem var að gerast í haust.

Vorhreingerning 2008

Það var allt þrifið hátt og lágt og rúmlega það á vordögum 2008. Svo settist fólk niður og fékk sér heita flatböku í boði skólans.

Fótboltaleikur leikara

Föstudaginn 24. apríl 2008 mættust 2. og 3. ár leikara í fótbolta. Leikgleðin var gífurleg, hlustun, mýkt og flæði ótrúleg og markvarsla Þórunnar óaðfinnanleg.

Leikurinn endaði 5-0 fyrir 3. ári. Ólöf Ingólfsdóttir leikfimikennari var á hliðarlínunni og tók myndir.


Nýju leikararnir boðnir velkomnir 2008

Mánudaginn 7. apríl 2008 fengu 5 strákar og 5 stelpur bréf sem bauð þau velkomin í leikaranám við LHÍ. 2. og 3. ár leikara klæddi sig í betri búninginn og bauð þau hjartanlega velkomin í fjögurra ára geðveikina. En ekki hvað?

Einstaklingsverkefni 2. árs leikara

Haustið 2007 byrjaði með látum hjá 2. ári. Djúpa laugin beið, troðfull af einstaklingsverkefnum. Og vatni.

Einstaklingsverkefni 3. árs leikara

Undirbúningur fyrir einstaklingsverkefni 3. árs nema í leikaranum veturinn 2007-8.

Fimleikar hjá 3. ári

3. ár leikara í fimleikum. Fæst orð bera minnsta ábyrgð.

Dansleikhús 3. árs

Á vorönn 2008 fór 3. ár leikaranema í dansleikhúsáfanga með Ólöfu Ingólfs, leikfimikennara. Þau gengu svo langt að leggja land undir fót og enduðu á Ísafirði þar sem þau unnu í viku. Útkoman varð svo sýningin "Ég heiti Jónas og ég er kona".

Örleikritasamkeppni framhaldsskólanna 2008

Nemendur á 2. ári leikara ásamt F&F-nemanum Árna Kristjánssyni leiklásu verk í örleikritasamkeppni framhaldsskólanna, laugardaginn 1. mars 2008 á Stóra sviði Þjóðleikhússins (hvorki meira né minna!)

Brecht

Litið inn á æfingu á Brecht hjá 2. ári leikara í febrúar 2008.

Dansleikhús 3. árs

Myndir úr dansverkinu "Ég heiti Jónas - Ég er kona" sem 3. ár leikara sýndi í febrúar 2008.

Líkaminn sem miðill

8. febrúar sýndu nemar á 2. ári í Fræði og framkvæmd verkefni í námskeiðinu "Líkaminn sem miðill".

Samtal - Hópur I

Í janúar 2008 var haldið stórt námskeið þar sem nemar úr öllum deildum komu saman og bjuggu til list. þemað var "karnival". Hér eru nokkrar myndir frá hópi I.

Ballett hjá 2. ári

2. ár leiklistar í ballett búningum og stellingum. Hér eru sannir listamenn á ferð!

Tiltektardagur

Nemendur leiklistardeildar tóku sig til og tóku til. Staðurinn var Sölvhólsgata og dagurinn var mánudagurinn 10. desember 2007.
Svo var að sjálfsögðu boðið upp á vöfflur og með'ðí.


Tangó-mílanga

1. og 2. ár leikarabrautar dansa tangó eins og enginn sé morgundagurinn. Vorið 2007.

Ýmsar myndir frá 2006-2007

Hitt og þetta af hinu og þessu. Mávurinn, Terrorismi, tiltektir, einstaklingsverkefni, devised leikhús eða við sjálf sem við sjálf. Þetta er allt hérna. Og rúmlega það.

Commedia dell Arte - 2. ár 2007

2. ár leikara í trúðatækni, nóvember 2007.

Upp aftur