Félag leiklistarnema á Íslandi

http://www.leiklistarnemar.is/

Breyta mér stillingum

Efni

Kvikmyndagagnrýni - 29.september 2009 

e. Hjört Jóhann og Sögu G. 

 

Up

Hjörtur og Saga brugðu sér í betri skóna og skelltu sér í kvikmyndahús Kringlunnar nýverið, nánar tiltekið um sexleytið þriðjudaginn 29. september, og sáu þar bandarísku tölvuteiknimyndina “Up”. Ekki nóg með það heldur var sýningin sérstök þrívíddarsýning sem krafðist þess af kvikmyndahússgestum að þeir settu upp þartilgerð þrívíddargleraugu.

 

Þar var hlegið og þar var grátið og hent að mörgu gaman.

 

En eftir að þrívíðargleraugun voru tekin niður, voru gagnrýnisglyrnurnar settar upp, að sönnum leiklistarnema hætti.

Svo hér, kæru samnemendur, gefur ykkur að líta ítarlega greiningu á nýjasta þrívíðarsamstarfsverkefni snillinganna hjá Pixar Animations og Disney Home Entertainment.

 

“Up” fjallar um gamlan mann sem hefur tapað lífsgleðinni og leggur af stað í ótrúlegt ferðalag til að endurupplifa gamla drauma. Á ferð sinni kynnist hann ótrúlegum persónum og lendir í ófyrirséðum ævintýrum. En tekst honum að yfirstíga fortíðina og mæta framtíðinni ótrauður?

Munu fyrirætlanir hans hafa þau áhrif sem hann hyggur? Mun hundurinn Hundur heita?

 

Eða ef við grípum í orðfæri gamla meistarans, Konstantín Sergeivitsj Staníslavskí: Í heimi þar sem minningarnar halda þér niðri er ekki pláss fyrir núið.

Og innkomandi barátta verksins er baráttan fyrir því að sleppa takinu.

 

Þrjár stjörnur.

 

Ykkar einlægu, Hjörtur Jóhann Jónsson og Saga Garðarsdóttir. 

 

 

Upp aftur