Efni
Um FLÍS
FLÍS (Félag Leiklistarnema Íslands) er nemenda-oghagsmunafélag leiklistarnema í námi við leiklistardeild Listaháskóla Íslands.Hlutverk félagsins er að veita nemendum stuðning varðandi ýmsa fleti í námiþeirra ásamt því að stuðla að öflugu félagslífi. Við erum rödd nemenda, bæðiinn á við og út á við. Við viljum standa vörð um hagsmuni okkar nemenda ogviljum bæta umhverfi þeirra í skólanum.
Stjórn FLÍS samanstendur af formanni, framkvæmdastjóra,gjaldkera og ritara. Hlutverk formannsins er fyrst og fremst að halda utan um hinaýmsu starfsemi félagsins. Hann situr deildarráðsfundi og er tenging nemenda viðbæði deildarforseta og svo einnig rektor LHÍ. Hann boðar fundi og er sá semnemendur geta leitað til ef að þeim finnst einhverju ábótavant í námi sínu.
Framkvæmdastjóri sér um að koma hlutunum í verk. Hannaðstoðar formanninn við að koma boðum áleiðis og er fulltrúi stjórnarinnargagnvart skemmtinefnd. Hann hefur yfirumsjón með félagslífinu og öllu sem þvívið kemur.
Gjaldkeri heldur utan um fjármál nemendafélagsins. Hanngreiðir reikninga FLÍS og sér um innkaup fyrir nemendafélagið.
Ritari sér um halda utan um fundargerðir FLÍS. Hann séreinnig um að koma tilkynningum nemendafélagsins áleiðis og er tengiliðurstjórnarinnar við vefritara.
Einnig eru nokkrar nefndir sem heyra undir FLÍS. Þar máhelst nefna skemmtinefnd en hlutverk hennar er að stuðla að skipulögðuskemmtana-og félagslífi við deildina. Norðannefnd sér um að skipuleggja árlegaferð FLÍS til Akureyrar þar sem LA er heimsótt. Vefritari sér um heimasíðu FLÍS(leiklistarnemar.is). Trúnaðarmaður er sá sem nemendur geta leitað til þegarviðkvæm mál koma upp á í námi. Dósanefnd sér um að halda utan um dósir ogflöskur þær sem falla til í félagslífinu og fara með þær í endurvinnslu.
Núverandi stjórn FLÍS:
Trúnaðarkonur nemenda: Tinna Sverrisdóttir og Olga Sonja Thorarensen (leikaranámi)
Vefritarar: Berglind Pétursdóttir og Ásrún Magnúsdóttir (dansnámi)










